,
17.07.2007 15:49:17 / sveinsen

waesdrtfyguhi

www.blog.central.is/nojjadur

 

það er málið þessi síða er döööööd...!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 02:50:03 / sveinsen

Já núna verður maður að blogga eitthvað..!!

OG HANA NÚ,

Ég fór á bílnum mínum til akureyrar um helgina ásamt nínu og einsa það var ekkert smá gaman, nema ég og einar vorum svo geðveikt latir að við nenntum ekki að tjalda eða neitt, við byrjuðum að finna ágætis tjaldsvæði.

til að komast inná þetta tjaldsvæði þurftum við að bíða í 2 klukkutíma og borga 1600- kall inn og við sváfum ekki einu sinni inná tjaldsvæðinu eða tjölduðum tjöldin sem við vorum nýbúnir að kaupa, heldur sváfum við frekar í tjaldinu hans bjössa á meðan bjössi svaf í bílnum hans rabba haha góður bjössi ;) jújú hvað ég er allt í einu svangur fokk hvað ég ætla bara að hafa þetta blogg tilgangslaust þannig að ég ætla að hætta hérna........sorry man whos the man sorry duuuuuuuuude ok man, woman ? whos the woMAN? the man!.....maaaaaaaaaaaaaan hey DÚDD !!! maaaan


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 17:35:05 / -bjarni

Hæ, það nennir enginn að blogga hérna og ég blogga öðru hverju en fer vonandi að laga það. Í tilefni þess opnaði ég nýja síðu núna í dag og slóðin er:

www.blog.central.is/bjarni-t 

Endilega kíkja og fá sér eina kleinu eða tvær...

Kveðja

Bjarni


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 19:13:53 / -bjarni

Keppni dauðans

Hæ, ég (Bjarni) og Valur erum í smá keppni sem við byrjuðum á áðan. Samkomulagið er þannig háttað að hann er 74kg og ég er 69kg, málið er að hann ætlar að létta sig niður í 70 kg (-4 kg) og ég ætla að þyngja uppí 73 kg (+4 kg). það er mikill misskilningur að halda að það sé auðveldara að þyngja sig, svoooo að þið þurfið að hugsa smá ,, en kjósið það sem þið haldið bara ;) Vinnur Valur? Vinnur Bjarni? Vinnur Valur? Vinnur Bjarni? Vinnur Bjarni? Vinnur Bjarni? Vinnur Bjarni? Vinnur Valur? Vinnur Bjarni? Vinnur Valur? Vinnur Valur? Vinnur Bjarni? Vinnur Valur? Vinnur Valur? Valur vinna? Hvar ætlar Valur að vinna? Ístak? Nei. Vinnur Bjarni? Hvað segiru? Hvar vinnur Bjarni? En það sem er í verðlaun er kassi af bjór... úje!

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 16:31:14 / -bjarni

Páskafrí... of langt?

Var að pæla hvort að páskafríið væri of langt... Ég er ekki einu sinni með vinnu, veit ekkert hvað ég á að gera í þessu fríi. Var að hugsa um að vera bara heima, sofa, skíta og éta. Fara lyfta. Er búinn að þyngjast um 2 kg frá því seinasta bloggi. Sem er fínt svosem. Þarf samt að fara byrja á því að hlaupa, fór á fótboltaæfingu seinasta fimmtudag og var þreyttur í löppunum næstu 2 daga eftir á, það var bara ömurlegt. En hvar ætti maður að vinna í sumar? Any suggestions? Ég ætla ekki að fara í Hertz, það er góður peningur jú, en "Vogarkrúið" (Ég, Valur, Einar, Svenni)  verðum ekkert saman aftur á vakt, það var besta vakt ever. Rústuðum oftast deginum... Ég er örugglega ekki einn um það en það vantar tjeeeeeelllingu í lífið mitt hehe fyrirgefið, dömu. Ég var að hlusta á e-ð sorglegt lag á Flass FM áðan þegar ég var að keyra heim á brautinni og misstir mig aðeins í minn eigin heim og horfði útí móa og á fjöllinn. Þetta var svona móment þarsem einmana ungur maður horfir útum gluggan í hugsunarleit að ástinni og í undirspilun er lagið "All by myself - Celine Dion", þetta var alvöru svona móment. Bara sorglegt. En svo kom e-ð lag með hérna... negrapopparanum honum........ æi ég man ekki hvað hann heitir, en röddin á honum er óskiljanleg og hundleiðinlegt að hlusta á hann syngja? Frekar raula eða e-ð kjaftæði, en annað gildir um Shaggy, það er gaman að hlusta á hann tala, hafiði heyrt þegar hann er að panta taxa? Ég nenni ekki að finna slóðina en þið getið googlað "Shaggy Taxi" eða e-ð álíka og hlustið á það, það er nett fyndið. Já negrapopparinn heitir Sean Paul sem ég er að tala um. Held ég. Heyrðu, það er e-r fótboltaþáttur í tv, ég ætla fara að borða og horfa á það, ekki oft þarsem ég hef tækifærið á að sjá bolta í tv, þarsem ég er ekki með skjásport né sýn...

Heyrumst 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 14:16:17 / -bjarni

shiiiii

Jæja meðan ég bíð til 13:00, eftir að komast í pottinn, þá langaði mig kannski að henda inn nokkrum orðum. Það er lítið búið að vera að gerast hérna, er nýbyrjaður í átaki aftur og stefnan sett á yfir 70 kg. Fyrsti dagurinn í átakinu byrjaði ekki vel, var að taka seinasta repsið í seinasta settinu í deadlift og sleit vöðvaþræði í mjóbakinu, that sucks. Var eins og gamall karl á tímabili, þurfti næstum hjálp við að klæða mig í sokkana og nærbuxur. Sem minnir mig á Einar Axel þegar hann þóttist vera blindur í sundi og fékk hjálp frá tveimur fullorðum köllum í klefanum. He he he. En í gær kíktum við strákarnir á H. í afmælið til Einars, það var ágætt. Við Einar og Gummi fífluðumst aðeins á Ný-Ung og á Aðalstöðinni. Byrjaði þannig að ég og Einar reyndum að henda Gumma inn um lúguna en það tókst ekki alveg, of mikil mótspyrna. Þannig I took one for the team og þeir hentu mér inn um lúguna. Var ekki beint tekið vel á mót mér, kellingin snar brjáluð. Það var samt fyndið og lífsreynslunnar virði. Eruði að grínast hvað maður getur eytt á barnum, ok ég eyddi kannski ekki miklu en damn hvað þetta er fljótt að fara, alltíeinu var ég bara seðlalaus eins og einhver gúrka þarna. Maður þorir nú varla að lyfta kortinu það endar bara með því að maður splæsir á alla línuna. Eitt ógeðslega pirrandi líka, ég fékk mér cheerios í gær, ekki með hunangs, heldur bara plain, allavega, ég ætlaði að horfa á sjónvarpið en adsl sendirinn kveikti ekkert á sér, fucked up, ónýtt drasl. Var nett pirraður á því, og ekki nóg með það, þá ætlaði ég að fara að horfa á sjónvarpið inní herbergi, en nei! Það kom bara svona blár skjár en ég heyrði samt í myndinni, reyndi að laga þetta en ekkert virkaði, ég braut sjónvarpsfjarstýringuna mína í tvennt og núna get ég ekkert stillt á AV eða e-ð annað. Einu takkarnir á sjónvarpinu eru til að hækka, lækka og skipta um stöð. Þannig ég get ekkert valið AV, stillt Contróssið og Brægtnessið og svona, ekki það að ég sé alltaf að því til að hafa e-ð að gera en samt leiðinlegt að eiga ekki fjarstýringu. Ætla að fara fá mér cheerios núna og skella dvd mynd í, nei Bjarni, bíddu við! Nú man ég, ég get það ekki...

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 21:06:51 / -bjarni

You know what really grinds my gears?

-Þegar littlir krakkar hanga fyrir utan húsið hjá mér með læti

-Þegar fólk ekur of nálægt miðlínunni á Reykjanesbrautinni, þá ek ég nálægt þeim líka

-Þegar strákar sem eru nýkomnir með bílpróf þykjast vera cool á bíl foreldra hans

-Þegar Bjarni hringir alltaf í mig þegar ég er að ríða Rebekku

-Þegar Kate Hudson hringir í mig og biður mig að koma í leikhús

-Þegar ljótir gaurar reyna við kellinguna mína

-Þegar Svenni beilar á mér

-Þegar Bjarni blikkar mig á rúntinum og ég held að hann ætli að tala við mig en keyrir svo í burtu

-Þegar ég fæ far í vinnuna með Jónasi en hann er of þreyttur til að keyra og lætur mig gera það

-Þegar fólk keyrir ógeðslega hægt í bænum og þegar maður tekur fram úr þá horfir það illum augum á mann

-Þegar morguntraffíkin er uppá sitt besta

-Þegar maður er í bíó og er að reyna að komast í sætið sitt eftir hlé og fólkið stendur ekki upp og maður dettur næstum með allt poppið

-Þegar maður kemst ekki á lista yfir eiturlyfjaneytendur í Vogunum

-Þegar feitt og ógeðslegt fólk afgreiðir mann á veitingastað (Subway)

-Keflavík (Dóri)

-Þú

-Bjarni og Dóri

-Holler


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 22:29:00 / -bjarni

Löngun i ad blogga um ekkert

Hæ, ka gera? Koma leika?

Ekkert að gera hérna hjá mér, langaði bara að blogga um ekkert. En ég var aðeins að pæla, er erfitt að hætta að reykja? Ég veit það reyndar ekki sjálfur en var að pæla í að byrja og svo eftir 1 ár þá reyna hætta. Því ég man eftir því að tveir aðilar byrjuðu að reykja bara ekki fyrir löngu af fúsum vilja og sögðust hafa þetta under control. En síðan þá hafa þeir eða allavega einn aðilinn oft sagst ætla hætta reykja en getur það ekki. Mér finnst það skrítið. Ég held að sjálfstjórn og agi geta fengið mann til að hætta reykja og viljinn. T.d. þá eru 3 manneskjur sem ég veit allavega um hættar að reykja sem hafa reykt í mörg ár. Begga og Linda eru t.d. búnar að vera hættar í aðeins meira en mánuð? Og þær eru búnar að reykja í mörg ár, flott hjá þeim.

 

Sama með Jóhann, hann er reyndar bara búinn að vera hættur í næstum viku en það er flott. Skil samt ekki hvað fólk er að pæla sem hefur reykt svona stutt hættir ekki bara. Maður hefur líka oft heyrt sögur af gömlum sjóurum sem reyktu eins og Indjánar reyktu friðarpípuna og einn daginn þá hættu þeir bara. Sáu hvernig þetta fór með þá. En hvað veit ég, það er ekki eins og ég reyki. Þannig kannski er ekki hægt að taka mark á mér. Djöfull er samt ekkert að gera á daginn hjá mér. Er í smá lyftingapásu núna og þá er bara ekki rassgat að gera. Er heima bara að kasta hurling bolta í loftið (svipaður og venjulegur hafnarbolti) og grípa og svona, voða gaman. Hver vissi að svona bolti gæti fært unglingi eins og mér svona mikla gleði, það gerir þessar 100kr. sem littli þrællinn fær á daginn fyrir að gera svona bolta bara mikið dýrmætari, hehe nei sorry þetta var ljótt, en samt... ef þú pælir í því.

 

Vá, svo hérna er ég í þessari árbókanefnd, og það er bara gaman að sjá myndirnar af sumu fólki, ekki taka þessu persónulega, en það getur líka verið hundleiðinlegt. Ok, ekki reiðast ef þið stelpur lesið þetta, en þegar þið komið í myndatöku í hópum og eruð svona 4 stelpur. Þá þarf að taka svona 30 myndir, miðað við 5 myndir á stelpu. Eins og það þarf allt að vera perfect. En það er bara gleði. Ásgeir var e-ð að prófa þetta og tók svona mynd af mér, ég hallaði mér aftan á stólinn sem Jói sat í og reyndi að vera geðveikt venjulegur. En bjóst náttúrulega við einhverjar nasty ass mynd því ég myndast illa, oftast hehe loka alltaf augunum útaf flassinu því það er alltaf svo sterkt finnst mér, maður vill nú halda sjóninni. Líklegast það seinasta sem maður myndi vilja missa. En útkoman var geðveik pós mynd dauðans. Damn! hehehe Ætla sýna ykkur hana.

(backup mynd)

Þú veist, Antonio Banderas HVAÐ! Ég var ekki einu sinni að pósa, I guess the camera loves me.

Nei nei, egóið að tala, talandi um egó, þá var ég að skoða heimasíðu Massa (Njarðvík) og var að skoða Reykjanesmót í drengjaflokk, ég held að það sé undir 23 ára. En í 67,5kg flokki þá er Reykjanesmetið 140kg í réttstöðulyftu, veit ekki hvort þessi síða sé e-ð uppfærð, endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. En ég gæti hugsanlega slegið það met... Er 66,5+ til svona 67,5 þegar ég er svangur, en saddur er ég svona 68kg. Og persónulegt met er 135kg hjá mér í réttstöðu, en það er svolítið síðan og er ég búinn að bæta mig, tek t.d. núna 3x8x105 ágætlega, þannig ég gæti kannski slegið það, how about that! Held samt að drengjaflokkur sér 23 og yngri, er samt ekki viss, stóð ekket um það þarna, allavega ekki svo ég viti. Ég sendi líka þessa mynd á Eskimo draslið og þeir báðu mig að koma í myndatöku á föstudag. Fæ penge og svona hehe, ætla fara, þannig ég pantaði tíma í ljós, 2 túrbóljósatíma svona svo maður lookar e-ð brúnn þarna.

Gummi! Hvar er félagsheimilið okkar sem þú lofaðir! :) Bráðvantar, getum ekki hengið heima hjá Villa alltaf... jú reyndar en það er ekkert billiard! Kostar 300kr eða e-ð í billiard uppá Víking, damn conspiracy. Svo bara planið fyrir sumarið að éta og éta eins og mother fucker og komast í 75kg. Djöfull er leiðinlegt að borða! Það er það leiðinlegasta sem ég geri. Ókei kannski ekki, en það er ógeðslega leiðinlegt að búa! til matinn. Eða ég kann reyndar ekkert að elda en að taka brauð, ost og skinku úr ísskápnum er leiðinlegt, bara allt þetta process! hehe ógeðslega latur gaur. En ég elska þegar ég kem heim og það eru skornir vatnsmelónubitar á disk á eldhúsborðinu, maður er ekki lengi að slafra því í sig. Væri geggjað ef ríkið myndi skaffa manni svona þernu sem sér til þess að þrífa og svona, elda, væri bara alltaf góður matur á borðinu ready. Og hún væri austurrísk og flott. Eins og í einni American Pie mynd, samt lélegar myndi en skemmtilegar engu að síður.

 

Bjarni

 

 

 

 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 15:38:49 / -bjarni

ho ho ho


fuckers

» 6 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 19:05:11 / -bjarni

Kaggi til sölu

Ertu orðinn leiður á að veiða ekki bílamellur með Yarisnum þínum? Ertu orðinn leiður á að festast í snjónum? Ertu orðinn leiður á að keyra óþægilegann bíl? Viltu komast til Þórsmarkar án þess að eiga jeppa? Viltu eignast bíl með vindskeið (spoiler)? Viltu að næsti bíll sem þú kaupir þér fylgja 2 dekkjagangar, framljós (lukt), öxlar, lakk og kannski e-ð fleira?

Ef þú svaraðir já í huganum eða jafnvel upphátt við öllum þessum eða flestum spurningunum hér fyrir ofan kíktu þá á gripinn:

GRIPURINN

SOLD! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 21:09:31 / lost-boy

er þetta að virka?

það eru drullu margir sem maður þekkir sem ljúga geðveikt að sjálfum sér ,, þykjast ekki vera emo en eru það .. og hlusta á þetta helvítis örlaga rokk sem er alveg hræðilegur skítur endalaust .. ég spyr bara hvað varð um almennilegt rokk .. shiiit mér finnst bara cool að vera hnakki við hliðina á þessu eða goth ... fokk. . þurfti bara að koma þessu frá mér :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 13:32:40 / -bjarni

Yee

Ekki mikið búið að vera að gerast, nema þegar það er snjór þá getur maður fyrst slædað e-ð án þess að vera á öflugum bíl.... Ógeðslega gaman, þrátt fyrir að maður eyði dekkjunum en samt gaman. Þarna er ég að keppa í rallý world cup 2003 í swiss, það var ágætt, jafnast ekkert samt á við að slæda á Touring 4wd á götum Voganna. Ösh!

En Rauðu Djöflarnir halda sigurgöngu sinni áfram, rústuðu Benfica í gær 3-1 á heimavelli. Geggjaður leikur, virkilega spennandi, óheppin þið sem misstuð af honum...þeas. ef ykkur líkar boltinn, annars er ykkur örugglega skítsama.



Vá hvað það er ekkert að gerast... seinasta prófið mitt á morgun.. STÆ, ég pakka því, er bara búinn að fá góðar einkannir í stæ, nema á seinasta kaflaprófinu, þá fékk ég 5.6 eða e-ð, ég hefði sætt mig við það fyrir ári, en núna er það hneikslanlegt, er annars bara búinn að fá um 8-10 í einkunn...Það kalla ég að taka sig á, en ég er sjálfur nokkuð búinn að taka mig á, komin í 65 kg! Það er ágætt...Maður reynir kannski að stefna á 75-80 fyrir næsta sumar... Svo beint á Nauthólfsvík og út með veiðistöngina! hehehe nei nei... Hvað á maður að gera yfir vetrarfríið áður en maður fer út? Mér dettur ekkert í hug, þetta er eiginlega bara ávísun á að eyða pening. Ég vaknaði um 11 og ég er ennþá á brókunum, þetta gefur kannski auga leið hvert ég stefni, white trash eftir jólafríið, með sósublett á bolnum og bremsuför sem sjást í gegnum nærjurnar.

Holler!
Bjarni

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 22:13:19 / -bjarni

ergearg

Mér leiðist óhemjumikið. Í alvöru, ég er að deyja úr leiðindum.Fór í próf í morgun, fór svo að lyfta, kom heim og sofnaði, vaknaði, fékk mér að borða, horfði smá á Jay & Silent Bob hehe, svo bara búinn að hanga uppí rúmi í allan dag, og borða, tölvunni, glatað. Vá hvað ég á mér ekkert líf. Próf á morgun líka, Grt, en ég meika það alveg. Hvað á maður að gera næstu helgi? Það verður ekki neitt að gerast, allir að vinna, eða ekki í þessu skítaþorpi AAAAA! come on! Ég held að ég sé að fá skammdegisþunglyndi, búinn að hlusta á Damien Rice og álíka sorgleg lög og höfunda í dag, jólalög....fór að rúnta áðan, ekki neinn úti, sá reyndar hund, hefði kannski getað skemmt mér með því að reyna ná honum, hann var bara laus úti, svo er jólatréð í Aragerðinu ógeðslega illa skreytt...haha, vá. Enginn með viti á msn. Kannski maður fari að endurskreyta jólatréð eða e-ð... Eða eyða bara heilum degi í að baka piparkökur. Senda það svo til Sauðarkróks, það er víst eyðni þar hehe suckers! Skortur á vatni og svona hehehe vá mér leiðist, ætla fá mér að borða...aftur....bæ



» 4 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 21:05:13 / -bjarni

Mæli ekki með:

Höfrum útí mjólk. Hafrarnir verða sem klessa á botninum á skálinni, verða mjúkir en leysast ekki upp... kannski ef þú geymir þá í mjólkinni í nokkra daga. Svo þegar þú borðar þá, þá svona er eins og  ... æi ég get ekki lýst því. Þetta er ekki gott, en ef þú tekur smá í einu eins og kannski hálfa matskeið þá meikar maður þetta alveg. Testið þetta við tækifæri.

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 14:21:33 / -bjarni

...sefnjkn

blÉg er geðveikt mikið að hugsa um að fara baka. Ég er ekki að grínast. Ég man þegar ég var í grunnskóla þá var gaman í heimilisfræði. Ég kann reyndar ekkert að baka eða neitt hvað þá elda, eins og einhverjir vita hérna þá gerði ég heiðarlega tilraun til að sjóða núðlur en það endaði með ósköpum. Kannski afþví að það var um 5 um nótt eða þá að ég sucka í því. Ég kann það reyndar núna enda fljótur að læra. Eða.... sumt er ég fljótur að læra... Ég ætla reyna baka e-ð sniðugt, kem með uppskriftina hérna seinna í dag eða í kvöld. Þetta verður fróðlegt. I got my fingers crossed, crossed, croooossssssed! ehehehe (þetta var í Freddy Got Fingered, sem er ein fyndnasta mynd allra tíma, mæli með henni!) Damn, kuldinn úti, seinustu daga hef ég bara komið heima úr ræktinni eða skólanum og beint undir sæng með tölvuna eða dvd, vantar bara kökurnar og kakóið... vona að það lagist í kvöld. Djöfulsins chill verður það... þú mátt koma í heimsókn í kökur og kakó,,,,kannski....ef þú ert gella í hjúkkubúning....annars..ekki. Þangað til á eftir,
Bjarni Hall.


Jæja, eftir sveitta klukkutíma í eldhúsinu tókst þetta allt saman. Uppskriftin að þessu sinni var "Súkkulaðikökur" síðan úr 8. bekk! Á ennþá slatti af uppkriftum síðan úr grunnskóla. En hún er svona ef þið hafið áhuga:

125 g smjörlíki
1 1/4 dl sykur
1 egg (ég bætti samt öðru við)
1/2 tsk. natron
1 dl haframjöl
1/2 dl saxaðar hnetur, ég átti bara salthnetur þannig ég saxaði möndlur
1/2 dl saxað súkkulaði, fyrir ykkur feitu þá getiði bætt meiri súkkulaði við, ég gerði það allavega

EN ég bætti við líka Sólblómafræjum sem er mjög hollt (í 100gr. 20g prótein, 14g kolvetni, 56g fita (holl fita)), gott fyrir þá sem eru að lyfta og reyna bæta á sig, líka þá bætti ég við 1 dl af whey próteini, bragðlausu. Getið einnig bætt við gainer eða e-ð álíka, þá er líklega best að nota súkkulaði bragð þarsem þetta eru jú súkkulaði kökur.

Svo bara hræra (mæli með hrærivél) og henda þessu inní ofn, getið notað 2x teskeiðar til að láta þetta á pappírinn. Mjög þægilegt og einfalt, meiraðsegja ég gat þetta, no problemo.

Bon apetit, kveðja,
Bjarni "Happychef"

PS. myndir www.bjarnit.bloggar.is (getið reynt að ýta hér, þetta drasl virkar ekkert þannig þið verðið örugglega bara að slá inn slóðina) 
Ef þið vitið um góðan "þjón" til að hósta inn myndum (fyrir utan picturetrail sem er piece of shit því það er ógeðslega slow) þá megiði endilega upplýsa mig!

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10